Roman Jakobson
Útlit
Roman Jakobson (11. október 1896 - 18. júlí 1982) var rússneskur málfræðingur, einn af forvígismönnum formgerðarstefnunnar. Hann var undir áhrifum frá Ferdinand de Saussure og vildi nálgast rannsóknir á tungumáli út frá því grundvallarhlutverki þess að koma upplýsingum milli mælenda. Einna þekktastur er Jakobson fyrir boðmiðlunarlíkan sitt. Til þess að sendandi (mælandi) geti komið boðum (til dæmis setningu) til viðtakanda (viðmælanda) þarf að vera fyrir hendi samhengi, boðrás og kóði.
samhengi boð sendandi ------------ viðtakandi boðrás kóði
Hverjum þætti boðmiðlunarinnar tengist eitt gildi.
tilvísunargildi skáldskapargildi tilfinningagildi ------------ áhrifagildi sambandsgildi kerfisgildi
Gildin sex eru misveigamikil í mismunandi orðræðum en yfirleitt hefur tilvísunargildið mest vægi.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Jakob Benediktsson (1983). Hugtök og heiti í bókmenntafræði. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands.
Fyrirmynd greinarinnar var „Roman Jakobson“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 15. desember 2006.