Fara í innihald

Greta Garbo

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Greta Garbo um 1930

Greta Garbo (Greta Lovisa Gustafsson, 18. september 190515. apríl 1990) var sænsk leikkona. Hún hóf kvikmyndaferil sinn í myndinni Gösta Berling eftir sænska leikstjórann Mauritz Stiller og vakti þá athygli Louis B. Mayer hjá Metro Goldwyn Mayer sem fékk hana til Bandaríkjanna. Næstu ár lék hún í þöglum myndum hjá fyrirtækinu. Fyrir hlutverk sitt í sinni fyrstu talmynd, Anna Christie (1930), var hún tilnefnd til Óskarsverðlauna. Næstu ár lék hún meðal annars í Mata Hari (1931) á móti Ramón Novarro og Grand Hotel þar sem hún mælti hina fleygu setningu „I want to be alone, I just want to be alone“. Þessi orð voru gerð að einkunnarorðum hennar af fjölmiðlum þar sem hún hafnaði öllum viðtölum og uppákomum og stóð vörð um einkalíf sitt. Eftir neikvæða dóma fyrir kvikmyndina Tvíburasystur (Two-Faced Woman - 1941) dró hún sig í hlé frá kvikmyndaleik. Hún einangraði sig þó ekki, heldur umgekkst stóran hóp vina og kunningja. Árið 1951 varð hún bandarískur ríkisborgari og 1953 keypti hún íbúð á Manhattan þar sem hún bjó til æviloka.

  Þessi kvikmyndagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
pFad - Phonifier reborn

Pfad - The Proxy pFad of © 2024 Garber Painting. All rights reserved.

Note: This service is not intended for secure transactions such as banking, social media, email, or purchasing. Use at your own risk. We assume no liability whatsoever for broken pages.


Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy